Djourou enn í myndinni hjá Wenger
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, segir að Johan Djourou sé enn í framtíðaráformum sínum hjá félaginu.
Djourou hefur ekki verið í byrjunarliði Arsenal síðan apríl en samtals hefur svissneski varnarmaðurinn spilað 86 keppnisleiki fyrir Lundúnarliðið á átta árum.
Leikmaðurinn er sagður vera á óskalista Napoli á Ítalíu en Wenger segir að hann gegni enn hlutverki í liðinu.
,,Ég lét Djourou ekki fara þar sem ég elska hann sem leikmann og hann elskar félagið," sagði Wenger.
Djourou hefur verið ónotaður varamaður í tveimur leikjum Arsenal á tímabilinu en svo virðist sem þessi 25 ára varnarmaður sé á eftir Thomas Vermaelen, Per Mertesacker og Laurent Koscielny í baráttunni um sæti í liðinu.

Athugasemdir
Nýjustu fréttirnar
11:12