Lukkudýr Heimsmeistaramótsins í fótbolta í Brasilíu árið 2014 verður beltisýdr, en það var formlega kynnt af brasilíska sóknarmanninum Ronaldo í sjónvarpsþætti í Brasilíu á sunnudaginn.
Það á eftir að gefa lukkudýrinu nafn en það er búið að teikna nokkrar myndir sem gefa góða hugmynd af því hvernig lukkudýrið mun koma til með að líta út.
Það á eftir að gefa lukkudýrinu nafn en það er búið að teikna nokkrar myndir sem gefa góða hugmynd af því hvernig lukkudýrið mun koma til með að líta út.
Lukkudýrið er þó ekki hvaða beltisdýr sem er, þetta er brasilískt beltisdýr sem er í bráðri útrýmingarhættu.
Brasilíska beltisdýrið hniprar sig saman í bolta þegar hætta er á ferðum og líkist þá fótbolta. Lukkudýrið er gult, í grænum stuttbuxum, með bláa skel og blátt skott og í hvítum bol. Þetta eru litir brasilíska fánans, gulur, grænn, blár og hvítur.
Á stuttermabol lukkudýrsins stendur Brasilía 2014. Lukkudýr HM 2010 í Suður-Afríku var hlébarði sem var gulur og grænn, eins og partur af fána Suður-Afríku og hét Zakumi. Á HM 2006 í Þýskalandi var lukkudýrið ljón sem var kallað Goleo.
Fyrsta lukkudýr á Heimsmeistarakeppni var árið 1966 á Englandi, ljón klætt í breska fánann og kallað Willie.
Í Mexíkó árið 1970 var lukkudýrið strákur að nafni Juanito, appelsína sem var skírð Naranjito var lukkudýrið á HM 1982 á Spáni, hundurinn Striker var lukkudýrið á HM 1994 í Bandaríkjunum og haninn Footix í Frakklandi árið 1998.
Boltinn sem notaður verður á Heimsmeistaramótinu verður kallaður Brazuca, sem er slangurorð í Brasilíu yfirleitt notað sem lýsingarorð yfir fólk, atvik eða hluti sem gera þjóðina stolta og vekja upp þjóðernishyggju í fólki, rétt eins og fótbolti gerir fyrir brasilísku þjóðina.


