Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mán 17. september 2012 08:30
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Suarez sagt að semja frið við Evra
Powerade
Þá er komið að helstu slúðurmolunum úr enska boltanum á þessum fína mánudegi.



Manchester City er við það að gera nýjan samning við David Silva. Þessi 26 ára gamli Spánverji hefur verið orðaður við Real Madrid en samkvæmt nýja samningnum mun hann fá 200 þúsund pund í vikulaun. (Daily Mail)

David Moyes, stjóri Everton, er að reyna að krækja í markvörðinn Artur Boruc sem er án félags eftir að hafa yfirgefið Fiorentina. (Daily Mail)

David Gill, framkvæmdastjóri Manchester United, ætlar að funda með Ian Ayre framkvæmdastjóra Liverpool, fyrir leik liðanna á sunnudag til að lægja öldurnar á milli félaganna. (Daily Telegraph)

Luis Suarez, framherji Liverpool, hefur fengið þau skilaboð að hann eigi að semja frið við Patrice Evra varnarmann Manchester United. (Daily Mail)

Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, telur að miðjumaðurinn ungi Nick Powell geti fyllt skarð Paul Scholes í framtíðinni. (The Sun)

Ferguson segir að leikmenn sínir muni aldrei fá að slaka á í leikjum í vetur eftir að hafa tapað titlinum á markamun síðastliðið vor. (Daily Mirror)

Jack Wilshere mun hefja æfingar með Arsenal að nýju í dag eftir árs fjarveru. (DAily Mirror)

Paul Ince er líklegastur til að taka við stjórastarfinu hjá Coventry. (The Sun)
Slapp
banner
banner
banner
banner