Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mán 17. september 2012 09:30
Magnús Már Einarsson
Bjarki Gunnlaugs ákveðinn í að hætta eftir tímabilið
Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir
Bjarki Bergmann Gunnlaugsson er ákveðinn í að leggja skóna á hilluna eftir tímabilið.

Þessi 39 ára gamli miðjumaður hefur leikið 18 af 19 leikjum FH í Pepsi-deildinni í sumar og verið magnaður en hann segir að nú sé kominn tími á að hætta.

,,Ég var búinn að segja fyrir mótið að ég ætlaði að enda þetta á titli og ég ætla að standa við það, loksins," sagði Bjarki við Fótbolta.net eftir leik FH og Stjörnunnar í gær þar sem Fimleikafélagið tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn með 2-2 jafntefli.

Bjarki hefur komið víða við á löngum ferli sínum en auk FH hefur hann leikið með uppeldisfélagi sínu ÍA, KR og einnig Val hér á landi.

Erlendis lék Bjarki síðan með Feyenoord, Nurnberg, Waldof Mannheim, Molde, Brann og Preston North End á sínum tíma.

Bjarki skoraði einnig sjö mörk í 27 landsleikjum fyrir Íslands hönd en sá síðasti var gegn Færeyjum árið 2000.
Slapp
banner