Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mán 17. september 2012 14:48
Ívan Guðjón Baldursson
Silva skrifar undir fimm ára samning við Man City
David Silva hefur skrifað undir fimm ára samning við Manchester City og er því samningsbundinn félaginu þar til sumarið 2017.

Silva átti tvö ár eftir af sínum gamla samning en hann skrifaði undir fjögurra ára samning þegar hann kom til félagsins árið 2010.

Silva, sem er 26 ára gamall spænskur sóknartengiliður, er talinn fá um 200 þúsund pund í laun á hverri viku, en það samsvarar um 40 milljónum króna í vikulaun.

,,Ég er mjög ánægður með nýja samninginn," sagði Silva í viðtali við vefsíðu Man City.

,,Ég hef verið hérna í tvö ár og mér líður mjög vel hjá þessu félagi og í þessari borg. Mér líður eins og heima.

,,Síðustu tvö ár hjá félaginu hafa farið mjög vel og ég vona að næstu fimm muni vera álíka góð. Ég vil vinna bikara."

Slapp
banner
banner