Víkingur Ólafsvík tryggði sér sæti í Pepsi-deildinni í fyrsta skipti í sögunni með 4-0 sigri á KA í gær. Nokkrir leikmenn liðsins lentu í óskemmtilegri lífsreynslu á leiðinni heim frá Akureyri þegar hjólið fór undan á lítilli rútu sem keyrði hluta af leikmönnunum.
,,Við vorum í bullandi stuði að keyra þegar hjólið datt undan rútunni og skoppaði framhjá okkur," sagði Guðmundur Steinn Hafsteinsson fyrirliði Ólafsvíkinga við Fótbolta.net í dag.
,,Það er spurning hvort við höfum verið að dansa aðeins of mikið í rútunni," bætti Guðmundur Steinn við léttur í bragði.
,,Valli sem var að keyra rútuna náði að stoppa hana og halda henni á veginum. Þetta var smá sjokk og þegar maður fór út og sá að það var allt farið undan rútunni þá fékk maður aðeins meira sjokk."
Ólafsvíkingar þurftu að bíða í um það bil klukkutíma á meðan ný rúta kom frá Borgarnesi en stemningin var góð og því létu menn þessa bið ekki hafa mikil áhrif.
Athugasemdir