Aron Jóhannsson skoraði tvö og lagði upp eitt
AGF 3 - 2 Midtjylland
1-0 Aron Jóhannsson ('11)
1-1 Danny Olsen ('27)
2-1 Aron Jóhannsson ('71)
3-1 David Devdariani ('86)
3-2 Rilwan Hassan ('94)
Aron Jóhannsson lék allan leikinn í liði AGF í dönsku Ofurdeildinni þegar liðið lagði Midtjylland á heimavelli.
Aron skoraði fyrsta mark leiksins í fyrri hálfleik en Danny Olsen jafnaði nokkru síðar og var staðan jöfn í hálfleik.
Aron kom heimamönnum aftur yfir á 71. mínútu og lagði svo upp þriðja markið sem David Devdariani skoraði þegar fjórar mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma.
Lokamark leiksins skoraði Rilwan Hassan og minnkaði þannig muninn í eitt mark en hann gerði það of seint og lokatölur leiksins 3-2.

Athugasemdir
Nýjustu fréttirnar
09:00