Heimild: FIFA
Spænski miðjumaðurinn Guti Hernandez hefur lagt skóna á hilluna aðeins 35 ára gamall, en hann var síðast á mála hjá Besiktas í Tyrklandi.
Guti, sem eins og áður segir, er 35 ára gamall, en hann hefur verið án félags síðan í nóvember.
Hann lék hjá Real Madrid á Spáni við vægast sagt frábæran orðstír. Hann var hjá félaginu í næstum 25 ár, þar sem hann lék 400 leiki fyrir aðalliðið og var einn besti miðjumaður félagsins lengi vel.
,,Ákvörðun hefur verið tekin. Ég hef fengið tilboð, en hef ákveðið að segja þetta gott og get ég nú eytt meiri tíma með fjölskyldunni," sagði Guti.
,,Ég ætla að læra að verða yfirmaður íþróttamála eða sem þjálfari, þar sem ég þjálfa yngri leikmenn. Ég vil þjálfa unglingalið Real Madrid, það er draumurinn," sagði hann að lokum.



