Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   lau 22. september 2012 18:40
Sebastían Sævarsson Meyer
Fellaini: Ég reyndi að nota höfuðið
Mynd: Getty Images
Marouane Fellaini, leikmaður Everton, hrósaði frammistöðu liðsins í dag þegar liðið lagði Swansea 3-0 í ensku úrvalsdeildinni.

Fellaini skoraði þriðja mark leiksins en Everton er sem stendur í öðru sæti deildarinnar með tíu stig.

,,Þetta var frábær leikur, liðið spilaði vel og við skoruðum þrjú mörk svo allir eru ánægðir. Þetta var frábær frammistaða hjá Everton," sagði Fellaini.

Fellaini lagði upp fyrsta mark leiksins fyrir Victor Anichebe en í endursýningum mátti sjá að Fellaini notaði hendina til að koma boltanum til samherja síns.

Það fór framhjá Anthony Taylor, dómara leiksins, sem dæmdi markið gott og gilt.

,,Ég reyndi að nota höfuðið," sagði Fellaini þegar hann var spurður út í atkvikið.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner