Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   sun 23. september 2012 12:00
Daníel Freyr Jónsson
Carrick: Formið segir ekkert til um úrslitin
Michael Carrick, miðjumaður Manchester United segist kunna að meta spennuna sem fylgir viðureignum United og Liverpool.

Þessi enski landsliðsmaður segir að spennan milli félagana fari ekki framhjá leikmönnunum fyrir leikinn og að það geri leikinn áhugaverðari.

,,Já, maður finnur klárlega fyrir því - en sumt af þessu finnst kann ég að meta," sagði Carrick.

,,Það er saga félagana tveggja og hefðir og allt sem því fylgir. Þetta eru leikir sem maður horfði á sem krakki svo þetta setur frábær fordæmi."

United hefur hafið tímabilið af ágætis krafti og unnið þrjá leiki í röð eftir tap í fyrsta leik. Carrick telur þó að það hafi engin áhrif á úrslit þessa leiks.

,,Ég held að formið verði algjörlega ótengt úrslitunum," bætti hann við.
Slapp
banner
banner
banner