Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   sun 23. september 2012 16:14
Sebastían Sævarsson Meyer
England: Demba Ba skaut Newcastle til sigurs
Newcastle 1 - 0 Norwich
1-0 Demba Ba ('19 )

Newcastle lagði Norwich 1-0 í ensku úrvalsdeildinni í dag en sigurmarkið skoraði Demba Ba þegar tæpar tuttugu mínútur voru liðnar af leiknum.

Eftir frábæra sendingu frá Hatem Ben Arfa inn fyrir vörn Norwich, slapp Ba einn í gegn og skoraði af öryggi, hans fjórða mark á leiktíðinni.

Papiss Cisse fékk síðan dauðafæri til að auka muninn fyrir Newcastle undir lok fyrri hálfleiks þegar hann brenndi af vítaspyrnu.

En það kom ekki að sök því Newcastle landaði að lokum verðskulduðum sigri og er liðið í níunda sæti með átta stig en Norwich er með þrjú stig í því sautjánda.
Slapp
banner
banner
banner