Heimild: BBC
Liverpool hefur hafið viðræður við nokkra af yngri leikmönnum liðsins um nýja samninga.
Þar á meðal eru Raheem Sterling og Suso sem hafa vakið athygli að undanförnu,.
Þar á meðal eru Raheem Sterling og Suso sem hafa vakið athygli að undanförnu,.
,,Þetta er eitthvað sem við munum skoða núna og næstu mánuði," sagði Brendan Rodgers stjóri Liverpool.
,,Það hafa verið viðræður milli félagsins og umboðsmanna leikmannanna en þetta er allt á frumstigi."
Rodgers hefur verið duglegur að gefa ungum leikmönnum tækifæri á tímabilinu og Liverpool er með yngsta byrjunarliðið að meðaltali í ensku úrvalsdeildinni en það hljóðar upp á 23,38 ár.




