Heimild: Sky
Andre Villas-Boas, knattspyrnustjóri Tottenham Hotspur á Englandi, segir að félagið komi til með að taka Evrópudeildina alvarlega á leiktíðinni.
Villas-Boas kom fyrst almenninlega í sviðljósið fyrir tveimur árum síðan er hann fagnaði fjórum titlum sem þjálfari FC Porto í Portúgal, en þá vann liðið Evrópudeildina meðal annars.
Keppnin sem slík hefur þó ekkert sérstaklega gott orð á sér og nýta mörg lið sér það að senda varamenn sína á völlinn í keppninni til að fá leiktíma, en Villas-Boas tekur henni þó mjög alvarlega.
,,Ég er ekki í stöðu til þess að gagnrýna viðhorf annarra þjálfara gagnvart þessari keppni, en ég virði keppnina. Á Englandi þá sér fólk hana sem einhverja refsingu og ég skil ekki af hverju," sagði Villas-Boas.
,,Þessi keppni er full af hefð, þá sérstaklega á Englandi og þess vegna kemur þetta mér enn meira á óvart. Spyrjið bara markmannsþjálfarann minn, Tony Parks, hvernig það var að vinna þessa keppni árið 1984."
,,Það hafa svo margir frábærir leikmenn unnið þessa keppni. Ray Clemence, Kevin Keegan og Tony Parks, þessi listi nær lengra áfram. Þú gætir búið til besta lið í heimi úr leikmönnum sem hafa unnið þessa keppni," sagði hann að lokum.




