Francesco Guidolin, þjálfari Udinese á Ítalíu, vonast til þess að ná sigri á Liverpool á Anfield á morgun.
Udinese heimsækir Liverpool á Anfield á morgun í Evrópudeildinni, en bæði lið sóttu sigur í fyrstu umferð keppninnar.
,,Andrúmsloftið verður svo sannarlega sérstakt og leikmennirnir eru ekki vanir svona ótrúlegu andrúmslofti," sagði Guidolin.
,,Ég held samt að einbeitingin hjá okkur ætti að vera á Liverpool, sem er frábært lið, þó svo andrúmsloftið á leiknum sé frábært og allt það, þá eru leikirnir spilaðir á vellinum."
,,Liverpool hefur ekki farið vel af stað á tímabilinu og liðið er að venjast aðferðum nýja stjórans, sem gerði vel hjá Swansea á síðasta tímabili. Þeir þurftu að borga sitt fyrir ýmsar breytingar, en ég verð að einbeita mér að hópnum mínum og hvað leikmenn mínir gera," sagði hann að lokum.


