Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 03. október 2012 20:49
Brynjar Ingi Erluson
Championship: Nottingham Forest og Blackburn skildu jöfn
Tveir leikir fóru fram í ensku fyrstu deildinni í kvöld, en þar gerðu Middlesbrough og Derby County meðal annars jafntefli.

Theo Robinson kom Derby yfir með marki úr víti á 16. mínútu. Pólski framherjinn Lucas Jutkiewicz jafnaði metin þremur mínútum síðan og þá kom hann liðinu yfir um tíu mínútum fyrir leikslok.

Paul Coutts jafnaði þó metin fyrir Middlesbrough og því 2-2 jafntefli niðurstaðan. Þá gerðu Nottingham Forest og Blackburn Rovers markalaust jafntefli.

Úrslit og markaskorarar:

Middlesbrough 2 - 2 Derby County
0-1 Theo Robinson ('16 , víti)
1-1 Lucas Jutkiewicz ('19 )
2-1 Lucas Jutkiewicz ('81 )
2-2 Paul Coutts ('87 )

Nottm Forest 0 - 0 Blackburn

Slapp
banner