Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 03. október 2012 21:20
Elvar Geir Magnússon
Wayne Rooney: Joe Hart besti markvörður heims
Manchester City getur þakkað markverðinum Joe Hart fyrir stigið sem liðið fékk í Meistaradeildinni í kvöld. City gerði 1-1 jafntefli gegn Borussia Dortmund þar sem Hart varði meistaralega trekk í trekk.

„Joe Hart hefur verið ótrúlegur. Að mínu mati besti markvörður heims," skrifaði Wayne Rooney, sóknarmaður Manchester United, á Twitter. Hart og Rooney eru liðsfélagar hjá enska landsliðinu

Hart viðurkenndi fúslega eftir leikinn að þýska liðið hefði verið mikið betra.

„Við verðum að vera ánægðir með stigið. Borussia Dortmund var í sérflokki og það þurfti öfluga varnarvinnu til að halda þeim bara í einu marki," sagði Hart.

City er aðeins með eitt stig eftir fyrstu tvær umferðirnar en hefði liðið tapað í kvöld hefði vonin um að komast upp úr riðlinum orðið ansi veik.
Slapp
banner
banner
banner