Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 04. október 2012 15:00
Þórður Már Sigfússon
Misjafnt ástand landsliðsmanna í aðdraganda landsleikja
Samantekt
Sölvi Geir Ottesen.
Sölvi Geir Ottesen.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Birkir Bjarnason.
Birkir Bjarnason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gylfi Þór Sigurðsson.
Gylfi Þór Sigurðsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aron Jóhannsson.
Aron Jóhannsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tilkynnt var í gær um íslenska landsliðshópinn sem mun mæta Albaníu á útivelli og Svisslendingum á heimavelli í undankeppni HM um miðjan þennan mánuð.

Það er fátt sem kemur á óvart í vali landsliðsþjálfarans, Lars Lagerback, sem þó hlýtur að hafa áhyggjur af lélegu leikformi sumra leikmannanna en tveir þeirra sem eru í landsliðshópnum að þessu sinni hafa ekki stigið fæti inn á knattspyrnuvöllinn síðan Ísland beið lægri hlut gegn Kýpur í september síðastliðnum.

Þessir leikmenn, Sölvi Geir Ottesen sem er á mála hjá FC Kaupmannahöfn og Eggert Gunnþór Jónsson, miðjumaður enska 1. deildarliðsins Wolves, virðast ekki eiga upp á pallborðið hjá þjálfurum liða sinna um þessar mundir og er það ljóst að það er landsliðinu ekki til tekna.

Auk þess hefur Birkir Bjarnason, sem var í byrjunarliði Íslands í sigurleiknum gegn Noregi og tapleiknum gegn Kýpur í síðasta mánuði, einungis komið við sögu í einum leik með Pescara í ítölsku úrvalsdeildinni á síðastliðnum þremur vikum. Í þeim leik kom hann inná sem varamaður 10 mínútum fyrir leikslok.

Þá hefur varnarjaxlinn Kári Árnason glímt við meiðsli síðan hann meiddist í landsleiknum gegn Noregi og lék sinn fyrsta deildarleik í rúman mánuð með Rotherham í ensku 3. deildinni um síðustu helgi.

Hins vegar hafa tveir lykilvarnarmenn spilað reglulega að undanförnu, þ.e. Grétar Rafn Steinsson, leikmaður Kayserispor, og Ragnar Sigurðsson, miðvörður FC Kaupmannahfanr, og sömu sögu má segja um Ara Frey Skúlason sem hefur þótt spila afburðarvel með Sundsvall í sænsku úrvalsdeildinni að undanförnu.

Lykilmiðjumenn spila

Það ríkir ekki bara depurð yfir íslensku landsliðmönnunum og hafa mikilvægustu hlekkir liðsins inni á miðsvæðinu, þ.e. Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður Tottenham, og landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson, leikmaður Cardiff, spilað marga leiki með félagsliðum sínum undanfarnar vikur og ljóst að þeir munu mæta í landsleikina í góðum gír. Helgi Valur Daníelsson, leikmaður AIK í Svíþjóð, og Emil Hallfreðsson, miðjumaður ítalska B-deildarliðsins Verona, hafa einnig spilað reglulega í undanförnum leikjum.

Hins vegar er staða vængmannanna ekki sú ákjósanlegasta en Rúrik Gíslason sem gekk ti lið við FC Kaupmannahöfn í lok ágúst, hefur einungis einu sinni verið í byrjunarliðinu til þessa og þá virðist Jóhann Berg Guðmundsson ekki eiga erindi í byrjunarlið AZ Alkmaar um þessar mundir en hann hefur spilað samtals 76 mínútur í síðustu þremur leikjum liðsins.

Funheitir framherjar

Framherjasveit landsliðsins er vel skipuð að þessu sinni. Lagerback valdi þrjá sóknarmenn sem hafa verið funheitir með félagsliðum sínum upp á síðkastið en samtals hafa þeir skorað 13 mörk í 10 leikjum síðan í tapleiknum gegn Albaníu.

Alfreð Finnbogason hefur verið í miklu stuði með Heerenveen í Hollandi en fimm mörk í síðustu fjórum leikjum liðsins sýna að hann mun mæta í komandi landsleiki fullur sjálfstrausts.

Einn umtalaðasti knattspyrnumaður þjóðarnar síðustu misseri, Aron Jóhannsson, hefur einnig verið í stórhættulegur upp við mark andstæðinga AGF í dönsku úrvalsdeildinni en hann hefur nú skorað 10 mörk í síðustu fimm leikjum liðsins. Sé litið til síðastliðnar þrjár vikur hefur hann skorað fjögur mörk í þremur deildarleikjum.

Gunnar Heiðar Þorvaldsson, framherji IFK Norrköping, hefur einnig verið í banastuði að undanförnu og er nú orðinn næst markahæsti leikmaður sænsku úrvalsdeildarinnar með 13 mörk til þessa á tímabilinu. Hann hefur, líkt og Aron, skorað fjögur mörk í síðustu þremur deildarleikjum Norrköping. Sé litið til síðustu þriggja vikna kemur í ljós að fæstar mínútur líða á milli marka hjá Gunnari, eða 63 mínútur. Það líða 67 mínútur milli marka hjá Aroni og 72 mínútur milli marka hjá Alfreði.

Þessi tölfræði sýnir fram á ótrúlega markaskorun þessarra þriggja framherja á undanförnum vikum og vonandi mun hún halda áfram í komandi landsleikjum.

Leikir, mínútur spilaðar og mörk skoruð með félagsliðum síðastliðnar þrjár vikur

Markmenn
Gunnleifur Gunnleifsson 4 leikir, samtals 360 mínútur
Hannes Halldórsson 4 leikir, samtals 360 mínútur
Haraldur Björnsson 3 leikir, samtals 270 mínútur

Vörn
Birkir Már Sævarsson, 4 leikir, 360 mínútur
Ragnar Sigurðsson 4 leikir, 360 mínútur
Ari Freyr Skúlason, 4 leikir, 360 mínútur, 1 mark
Grétar Rafn Steinsson 3 leikir, 270 mínútur
Hólmar Örn Eyjólfsson, 2 leikir, 107 mínútur
Kári Árnason, 1 leikur, 90 mínútur
Sölvi Geir Ottesen, 0 leikur, 0 mínútur

Miðja
Aron Einar Gunnarsson, 5 leikir, 374 mínútur, 1 mark
Helgi Valur Daníelsson, 4 leikir, 351 mínúta
Emil Hallfreðsson, 4 leikir, 299 mínútur
Gylfi Þór Sigurðsson, 5 leikir, 241 mínúta, 1 mark
Rúrik Gíslason, 2 leikir, 118 mínútur
Jóhann Berg Guðmundsson, 3 leikir, 76 mínútur
Birkir Bjarnason, 1 leikur, 10 mínútur
Eggert Gunnþór Jónsson, 0 leikur, 0 mínútur

Sókn
Alfreð Finnbogason, 4 leikir, 360 mínútur, 5 mörk (72 mín milli marka)
Aron Jóhannsson, 3 leikir, 270 mínútur, 4 mörk (67 mín milli marka)
Gunnar Heiðar Þorvaldsson 3 leikur, 251 mínúta, 4 mörk (63 mín milli marka)
Slapp
banner
banner