Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mið 03. október 2012 21:55
Brynjar Ingi Erluson
Mancini: Við áttum ekki skilið stig í kvöld
Roberto Mancini, knattspyrnustjóri Manchester City á Englandi, var ekki ánægður með spilamennsku liðsins gegn Borussia Dortmund í Meistaradeildinni í kvöld.

Marco Reus kom Dortmund yfir áður en Mario Balotelli jafnaði með marki úr vítaspyrnu undir lokin.

Dortmund var sterkari aðilinn og þurfti Joe Hart að hafa sig allan í að verja hættuleg færi þýska liðsins.

,,Við spiluðum ekki vel. Við áttum ekki skilið að taka þetta stig, en á endanum gæti þetta verið mikilvægt stig," sagði Mancini.

,,Borussia Dortmund spilaði betur en við og eru í augnablikinu betri en við. Við þurfum að hlaupa og berjast fyrir hverjum bolta. Það er ekki nóg að vera bara með gæðin, en ég vissi að þetta yrði erfitt frá byrjun því Dortmund er með meiri reynslu en við í Meistaradeildinni."

,,Ég held að Joe Hart hafi bjargað okkur, því hann gerði virkilega vel. Ég veit hvert vandamálið er og ég mun leysa það á næstu dögum. Ef við bætum okkur ekki þá verður erfitt að komast áfram, en þetta stig gæti reynst mikilvægt,"
sagði hann að lokum.
Slapp
banner
banner