Thomas Vermaelen, fyrirliði Arsenal, segir að liðið hafi ekki leikið nægilega vel í fyrri hálfleik gegn Olympiakos í kvöld. Staðan var 1-1 í leikhléi en Arsenal skoraði tvívegis í seinni hálfleik og tryggði sér stigin þrjú.
„Við vorum mun betri í seinni hálfleik en í þeim fyrri. Fyrri helming leiksins vorum hægir og sendingarnar okkar voru ekki að rata rétta leið," segir Vermaelen.
Hann vill þó ekki kenna því um að menn hafi verið þreyttir eftir 2-1 tapleikinn gegn Chelsea um síðustu helgi.
„Í þessari keppni er mikilvægt að vinna heimaleikina. Við viljum halda áfram á þessu skriði."
Steve Bould stýrði Arsenal í leiknum en Arsene Wenger er í banni í Evrópukeppninni.
„Þetta var erfiður leikur. Þeir gerðu okkur erfitt fyrir en á heildina litið eru þetta stórgóð úrslt," segir Bould.





