Joe Hart, markvörður Manchester City á Englandi, var í banastuði er liðið gerði 1-1 jafntefli við Borussia Dortmund í kvöld.
Marco Reus kom Dortmund yfir áður en Mario Balotelli jafnaði með marki úr vítaspyrnu undir lokin, en Joe Hart varði vel í markinu hjá City og bjargaði í raun enska liðinu sem hefði getað fengið fleiri mörk á sig.
,,Við verðum að vera ánægðir með stigið. Mario var ekki að fara að klúðra þessu, en ég veit ekki hvort þetta var víti eða ekki," sagði Hart.
,,Við héldum lífi okkar í riðlinum, en mér fannst Borussia Dortmund vera í allt öðrum klassa í kvöld," sagði hann að lokum.


