Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mið 03. október 2012 23:00
Elvar Geir Magnússon
Agger að skrifa undir nýjan samning við Liverpool
Samkvæmt Daily Mirror er danski varnarmaðurinn Daniel Agger að ganga frá nýjum fjögurra ára samningi við Liverpool.

Mun samningurinn færa honum 75 þúsund pund í vikulaun.

Agger er 27 ára og er talið að hann muni jafnvel skrifa undir fyrir leik Liverpool gegn Udinese í Evrópudeildinni annað kvöld.

Það er þó mjög ólíklegt að hann muni koma við sögu í sjálfum leiknum þar sem hann er enn að glíma við smávægileg meiðsli í hné sem hann hlaut í tapinu gegn Manchester United. Meiðslin eru ekki alvarleg en líklegt að hann verði hvíldur á morgun.

Talið er að hinn 18 ára Suso muni einnig skrifa undir nýjan samning við Liverpool síðar í vikunni.
Slapp
banner
banner