Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 04. október 2012 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Farid Zato æfir með þýsku liði
Zato á æfingu hjá FC Ingolstadt.
Zato á æfingu hjá FC Ingolstadt.
Mynd: Aðsend
Farid Zato miðvallarleikmaður HK æfir þessa dagana með liði FC Ingolstadt í Þýskalandi.

Zato sem átti gott sumar með HK í 2. deild karla í sumar og var að tímabilinu loknu boðið að mæta til æfinga með þýska liðinu.

Ingolstadt er í 8. sæti næst efstu deildar í Þýskalandi þegar 8 umferðir eru búnar.

Farid, sem er 20 ára gamall miðjumaður, spilaði sjö leiki með HK á síðasta ári í fyrstu deildinni. Hann kom svo aftur til liðsins í 2. deildinni í sumar og skoraði tvö mörk í 17 leikjum með liðinu.

Hann kom upphaflega hér til lands til að leika með FH, en hann lék með öðrum flokk félagsins ásamt því að vera í hóp hjá meistaraflokknum.

Hann er fæddur í Tógó.
Slapp
banner
banner