Carl Jenkinson, varnarmaður Arsenal, hefur litið vel út á þessu tímabili eftir að hafa verið aðhlátursefni í fyrra.
Móðir hans er finnsk og hefur finnska knattspyrnusambandið reynt að fá þennan tvítuga leikmann til að spila fyrir A-landsliðið en án árangurs.
Móðir hans er finnsk og hefur finnska knattspyrnusambandið reynt að fá þennan tvítuga leikmann til að spila fyrir A-landsliðið en án árangurs.
Jenkinson hefur leikið fyrir U21 landslið Finnlands.
„Já þeir hafa talað við mig en ég afþakkaði í bili. Ég ætla að einbeita mér að félagsliði mínu. Þið megið lesa það út úr því sem þið viljið," segir hægri bakvörðurinn.
Við ætlum að lesa það úr þessu að Jenkinson eigi sér enn draum um að spila fyrir landslið Englands. Hann fæddist í landinu og ólst upp sem stuðningsmaður Arsenal.




