Cristiano Ronaldo, leikmaður Real Madrid á Spáni, var ánægður með 1-4 sigur liðsins á Ajax í Meistaradeildinni í gær.
Ronaldo skoraði þrennu fyrir spænska liðið, en Madrídingum hefur ekki gengið vel að undanförnu í spænsku deildinni og vonast portúgalski vængmaðurinn til þess að þetta bæti sjálfstraustið fyrir stórleik helgarinnar er Real Madrid mætir Barcelona.
,,Ég er mjög ánægður því við unnum og spiluðum vel. Að skora þrjú mörk er mér mikilvægt. Leikur okkar var fullkominn og það er mjög mikilvægt að fá sjálfstraustið fyrir leikinn gegn Barcelona," sagði Ronaldo.
,,Það er mér mikilvægt að skora þrennu, en það mikilvæga er liðið og án þeirra gæti ég ekki skorað mörk," sagði hann að lokum.




