Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fim 04. október 2012 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Steve Bould: Þeir gerðu okkur erfitt fyrir
Steve Bould, aðstoðarþjálfari Arsenal á Englandi, var ánægður með 3-1 sigur liðsins á Olympiakos í Meistaradeild Evrópu í gær.

Bould stýrir Arsenal þessa stundina, en Arsene Wenger, stjóri liðsins, tók út sinn síðasta leik í banni í gær.

Gervinho, Lukas Podolski og Aaron Ramsey skoruðu mörk Arsenal í gær, en Bould var ánægður með frammistöðu sinna manna.

,,Við unnum leikinn og það eru frábær úrslit fyrir okkur. Þeir gerðu okkur erfitt fyrir og mér fannst þeir virkilega góðir," sagði Bould.

,,Þeir skipulögðu sig vel og gerðu okkur erfitt fyrir. Mér fannst við betri í síðari hálfleik og bættum okkar leik, en mér fannst við einnig örlítið stressaðir á köflum. Ef á heildina er litið hinsvegar þá erum við í skýjunum," sagði hann að lokum.
Slapp
banner
banner