Massimo Allegri, þjálfari AC Milan á Ítalíu, var ánægður með 2-3 sigur á Zenit St. Pétursborg í Meistaradeild Evrópu í gær.
Urby Emanuelson kom Milan yfir áður en ítalski vængmaðurinn Stephan El-Sharaawy bætti við öðru marki með glæsilegu skoti. Zenit jafnaði leikinn með tveimur mörkum með stuttu millibili áður en heimamenn urðu fyrir því óláni að skora í eigið net.
,,Þetta var mikilvægur sigur, en ég er viss um að niðurstaðan í þessum riðli ræðst ekki fyrr en alveg í lokin," sagði Allegri.
,,Ég verð að hrósa strákunum fyrir frammistöðu þeirra, þar sem þeir leituðust eftir því að vinna leikinn allan tímann."
,,Abbiati átti nokkrar frábærar vörslur í bæði fyrri og seinni hálfleik. Hann er frábær markvörður sem hefur á tveimur árum mínúm hér gert frábæra hluti," sagði hann að lokum.




