Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fim 04. október 2012 08:30
Brynjar Ingi Erluson
El Shaarawy: Getum skapað nóg fyrir framan markið
Stephan El Shaarawy, leikmaður AC Milan á Ítalíu, var að vonum ánægður með 2-3 sigur liðsins á Zenit St. Pétursborg í Meistaradeild Evrópu í gær.

El Shaarawy, sem er 19 ára gamall, skoraði eitt af mörkum Milan í gær, en það má segja að það hafi verið ansi fallegt mark.

Hann varð þar með yngsti leikmaður Milan til að skora í Meistaradeild Evrópu, en þetta var hans fimmta mark með liðinu í fjórum leikjum á þessu tímabili.

,,Þetta var mjög erfiður leikur og við þurftum að berjast til endaloka, en þetta hafðist og við erum mjög ánægðir," sagði El Shaarawy.

,,Með leikmennina sem við erum með þá getum við skapað nóg af tækifærum fyrir framan markið og þess vegna var ákveðið að spila svona," sagði hann að lokum.
Slapp
banner
banner