De Boer: Vinnur ekki ef þú dýrkar andstæðinginn
Frank De Boer, þjálfari Ajax í Hollandi, var allt annað en sáttur með 4-1 tap liðsins gegn spænsku meisturunum í Real Madrid í Meistaradeild Evrópu í gær.
Cristiano Ronaldo skoraði þrjú mörk og þá skoraði Karim Benzema eitt í stórsigri spænska liðsins, en Moisander skoraði mark heimamanna í Ajax.
De Boer var ekki sáttur við frammistöðu hollenska liðsins eins og gefur að skilja, en hann segir liðið hafa borið of mikla virðingu fyrir lærisveinum Jose Mourinho.
,,Við spiluðum mjög illa. Við náðum ekki að spila okkar leik og þegar þú getur það ekki þá vinnur þú ekki Real Madrid. Ég er fyrir vonbrigðum, sérstaklega með fyrstu 50 mínúturnar. Þegar við minnkum muninn þá sköpuðum við meiri hættu, en við áttum ekki skilið að jafna," sagði De Boer.
,,Ég segi alltaf við mína leikmenn að þeir eigi að virða andstæðinginn, en þú átt aldrei að dýrka hann. Við gerðum það í gær og ef maður gerir það þá vinnur maður aldrei Real Madrid," sagði hann að lokum.

Athugasemdir
Nýjustu fréttirnar