KA kynnir nýjan þjálfara síðdegis
KA hefur boðað til fréttamannafundar í KA-heimilinu klukkan 17:15 í dag þar sem nýr þjálfari félagsins verður kynntur til sögunnar.
KA hefur verið í leit að nýjum þjálfara síðan að Gunnlaugur Jónsson ákvað að hætta með liðið eftir tímabilið.
Bjarni Jóhannsson hefur verið sterklega orðaður við stöðuna en hann hætti með lið Stjörnunnar fyrr í vikunni.
Fyrr í vikunni staðfesti Gunnar Níelsson formaður knattspyrnudeildar KA að félagið hefði rætt við Bjarna sem og nokkra aðra aðila.
KA endaði í fjórða sæti í fyrstu deild karla á nýliðnu tímabili en Gunnlaugur Jónsson hefur stýrt liðinu undanfarin tvö ár.

Athugasemdir
Nýjustu fréttirnar
18:45