Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 04. október 2012 12:30
Elvar Geir Magnússon
Úrvalslið vikunnar í Meistaradeildinni
Vefsíðan Goal.com hefur sett saman úrvalslið fyrstu umferðar í riðlakeppni Meistaradeildarinnar og má sjá það hér að neðan. Joe Hart og Cristiano Ronaldo fóru hamförum og eru leikmenn vikunnar.

Markmaður:

Joe Hart - Manchester City
Christian Abbiati var stórkostlegur í markinu hjá AC Milan en Joe Hart var enn betri þegar City náði að kría út 1-1 jafntefli gegn Borussia Dortmund í stórskemmtilegum leik.

Varnarmenn:

Mikael Lustig - Celtic
Hægri bakvörðurinn átti flottan leik í flottum sigri Celtic gegn Spartak í Moskvu.

Leonardo Bonucci - Juventus
Stóð sig vel í vörninni gegn Shaktar Donetsk auk þess að skora jöfnunarmark Juventus í 1-1 jafnteflisleik.

Douglao - Braga
Braga vann sterkan sigur á Galatasaray og átti Douglao stórleik í hjarta varnarinnar.

Eliseu - Malaga
Portúgalski landsliðsmaðurinn átti stórleik í vinstri bakverðinum gegn Anderlecht.

Miðjumenn:

Manuel Iturra - Malaga
Var drifkrafturinn bakvið sigur Malaga á Anderlecht.

Cesc Fabregas - Barcelona
Átti flottan leik gegn Benfica og náði að skora. Sjóðheitur í markaskorun í búningi Barcelona.

Mario Götze - Borussia Dortmund
Magnaður leikmaður sem gaf varnarmönnum Manchester City aldrei frið.

Sóknarmenn:

James Rodriguez - Porto
Kólumbíumaðurinn ungi átti stórleik á vinstri væng Porto gegn PSG.

Cristiano Ronaldo - Real Madrid
Hlóð í þrennu í 4-1 sigri Real Madrid gegn Ajax í Amsterdam.

Lionel Messi - Barcelona
Náði ekki að koma sér á blað í markaskorun en skapaði mikið og lagði upp mörk í Lissabon.
Slapp
banner
banner