Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fim 04. október 2012 11:40
Magnús Már Einarsson
Kristján Finnboga ætlar að vera áfram í Árbænum
Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir
Markvörðurinn gamalreyndi Kristján Finnbogason reiknar með að vera áfram hjá Fylki næsta sumar. Kristján hefur verið orðaður við sitt gamla félag Gróttu en hann gerði tveggja ára samning við Fylki í fyrra og býst við að klára síðara árið af þeim samningi.

,,Ég reikna með að vera áfram í Árbænum, ég á ekki von á öðru," sagði Kristján við Fótbolta.net í dag.

Kristján er 41 árs gamall en í sumar var hann markmannsþjálfari Fylkis sem og varamarkvörður á eftir Bjarna Þórði Halldórssyni. Kristján kom við sögu í þremur leikjum í sumar og var meðal annars hetja Fylkis gegn FH í 32-liða úrslitum Borgunarbikarsins.

Kristján reiknar með að æfa áfram með Fylki en hann veit þó ekki hvort hann verði áfram varamarkvörður eða ekki.

,,Ég ætlaði ekki að spila neitt í sumar, ég vonaðist til að Bjarni myndi ná þessu öllu en maður veit aldrei hvað verður," sagði Kristján.

,,Maður verður örugglega eitthvað með á æfingum en við erum með einn ungan og gríðarlega efnilegan strák (Ólaf Íshólm Ólafsson) sem var á yngsta ári í öðrum flokki í ár. Hann verður árinu eldri og það er spurning hvernig þetta verður."
Slapp
banner