Sóknarmaðurinn Antonio Cassano hefur sagt að hann vilji enda ferilinn hjá Sampdoria. Cassano er þrítugur og gekk í raðir Sampdoria 2007 frá Real Madrid en yfrgaf félagið í janúar 2011.
Nú er hann hjá Inter eftir dvöl hjá Milan.
Nú er hann hjá Inter eftir dvöl hjá Milan.
Edoardo Garrone, varaforseti Sampdoria, telur að Cassano gæti nýst ansi vel þegar hann leggur skóna á hilluna og þá í hlutverki svokallaðs njósnara.
„Cassano hefur ótrúlega hæfileika og sér fótboltann með öðrum augum en næstum allir í heiminum. Hann hefur gríðarlega sterkan skilning á því hvort leikmenn séu góðir," segir Garrone.
„Í framtíðinni, þegar Cassano hættir, gæti hann starfað hjá okkur við að finna nýja hæfileikaleikaríka leikmenn."



