Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fim 04. október 2012 13:00
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Martinez íhugar að áfrýja sektinni
Roberto Martinez, stjóri Wigan, íhugar nú að áfrýja 10 þúsund punda sekt sem hann fékk frá enska knattspyrnusambandinu fyrir ummæli sín eftir leik gegn Manchester United í síðasta mánuði.

Martinez var allt annað en sáttur með dómgæsluna í 4-0 tapinu gegn Manchester United á dögunum.

Eftir leik sakaði Martinez dómarann um að dæma Manchester United í hag en hann vildi sjá Danny Welbeck fá að líta rauða spjaldið í leiknum.

,,Við erum að bíða og sjá hvort við getum áfrýjað þessari ákvörðun því að ég er ekki sammála henni," sagði Martinez.

,,Í augnablikinu er þetta eitthvað sem við verðum að sætta okkur við en við munum skoða dóminn og sjá hvort við getm áfrýjað."
Slapp
banner
banner
banner