Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fim 04. október 2012 15:30
Magnús Már Einarsson
Gummi Ben tekur ekki við Gróttu
Guðmundur Benediktsson og Ólafur Kristjánsson.
Guðmundur Benediktsson og Ólafur Kristjánsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðmundur Benediktsson mun ekki taka við þjálfun Gróttu samkvæmt heimildum Fótbolta.net.

Grótta hafði sýnt áhuga á að fá Guðmund Benediktsson og Kristján Finnbogason til að taka við liðinu.

Nú er ljóst að svo verður ekki en Kristján ætlar að vera áfram hjá Fylki og Guðmundur mun líklega halda áfram sem aðstoðarþjálfari hjá Breiðabliki.

Guðmundur hefur verið aðstoðarþjálfari hjá Breiðabliki undanfarin tvö ár en þar áður þjálfaði hann Selfyssinga í Pepsi-deildinni árið 2010.

Grótta endaði í tíunda sæti 2. deildar í sumar eftir að hafa fallið úr 1. deildinni í fyrra. Þjálfaraskipti urðu í ágúst þegar Sigurður Helgason var látinn fara.

Guðjón Kristinsson og Dusan Ivkovic stýrðu liðinu út tímabilið. Þeir munu halda áfram við uppbyggingarstarf félagsins og þjálfa yngri flokka Gróttu, 2 og 4.flokk.
Slapp
banner
banner
banner