Roy Hodgson, landsliðsþjálfari Englands, ætlar að hringja í Rio Ferdinand og biðjast afsökunar á því að hafa sagt farþegum í lest að landsliðsferli hans væri lokið.
Eins og við greindum frá í gærkvöldi þá var Roy að ferðast með neðanjarðarlest í London þegar farþegi spurði hann að því hvort Ferdinand yrði valinn í landsliðið.
Eins og við greindum frá í gærkvöldi þá var Roy að ferðast með neðanjarðarlest í London þegar farþegi spurði hann að því hvort Ferdinand yrði valinn í landsliðið.
„Ég efast stórlega um það. Hann hefur ekki spilað fyrir England í langan tíma. Tími hans með enska landsliðinu er liðinn. Hann er kominn að leiðarlokum. Hann er að verða 34 ára og hefur ekki spilað fyrir landsliðið lengi," á Hodgson að hafa sagt í lestinni.
Ferdinand vonaðist eftir því að vera kallaður inn í landsliðið á ný eftir að John Terry tilkynnti að hans landsliðsskór væru komnir á hilluna,
„Ég er miður mín yfir því að fréttin hafi komið svona út og ég bið Rio innilegrar afsökunar. Ég myndi aldrei segja með þessum hætti að hann væri kominn að leiðarlokum," sagði Hodgson við enska fjölmiðla í dag eftir að fréttin birtist.
„Ég man það að ég var að spjalla við ókunnugt fólk í lestinni og einn spurði mig hvort Rio væri í næsta hóp. 'Ég held ekki' svaraði ég að mig minnir. Að sjálfsögðu var rangt að mér að svara með þessum hætti. Þetta voru mistök og ég þarf að biðjast afsökunar."
„Þetta er einn af ókostum þess fyrir mig að ferðast með lestum þegar ég fer til London. Ég valdi að spjalla við fólk frekar en að sitja eins og stytta og neita að opna munninn. Mér var refsað fyrir það."





