Heimild: BBC
Samir Nasri, miðjumaður Manchester City, er ekki í franska landsliðshópnum sem mætir Japan í vináttuleik í næstu viku og Spánverjum í undankeppni HM.
Nasri er búinn að afplána þriggja leikja bann sem franska knattspyrnusambandið setti hann í eftir EM í sumar.
Nasri lét þar meðal annars blaðamann heyra það og í kjölfarið ákvað franska knattspyrnusambandið að refsa honum. Þrátt fyrir að vera búinn að taka út refsinguna þá kemur hann ekki aftur inn í hópinn núna.

Hatem Ben Arfa miðjumaður Newcastle er einnig áfram úti í kuldanum hjá Didier Deschamps landsliðsþjálfara en hann lenti í rifrildi við Laurent Blanc fyrrum þjálfara Frakka í hálfleik á leik í EM í sumar.
Markverðir: Lloris (Tottenham), Mandanda (Marseille), Landreau (Lille)
Varnarmenn: Clichy (Manchester City), Evra (Manchester United), Jallet (Paris St Germain), Sakho (Paris St Germain), Rami (Valencia), Yanga-Mbiwa (Montpellier), Koscielny (Arsenal), Debuchy (Lille)
Miðjumenn: Cabaye (Newcastle), Gonalons (Lyon), Matuidi (Paris St Germain),
Valbuena (Marseille), Sissoko (Toulouse), Capoue (Toulouse), Diarra (Anzhi Makhachkala)
Framherjar: Benzema (Real Madrid), Giroud (Arsenal), Gomis (Lyon), Menez (Paris St Germain), Ribery (Bayern Munich)