Þjálfaramál Vals ennþá í óvissu
Ekki er enn ljóst hvort Kristján Guðmundsson muni halda áfram sem þjálfari Vals eða ekki.
Hávær orðrómur hefur verið um að Kristján muni ekki halda áfram á Hlíðarenda en Sigurður Kristinn Gunnarsson í meistaraflokksráði félagsins segir að ekkert sé ljóst í þeim efnum.
,,Þetta er allt í athugun ennþá. Við förum bara rólega í þetta," sagði Sigurður Kristinn við Fótbolta.net í dag.
Kristján hefur þjálfað Val undanfarin tvö ár en hann tók við liðinu á haustmánuðum 2010. Nafn Willums Þórs Þórssonar er meðal þeirra sem hefur verið í umræðunni í sögusögnum um næsta þjálfara liðsins.
Í sumar enduðu Valsmenn í 8. sæti Pepsi-deildarinnar með 28 stig eftir mjög óstöðugt gengi síðari hluta móts.

Athugasemdir
Nýjustu fréttirnar
14:40