Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fim 04. október 2012 16:28
Magnús Már Einarsson
Heimild: Skessuhorn 
Andri og Hallur æfa með Norrköping
Mynd: Twitter
Andri Adolphsson og Hallur Flosason leikmenn ÍA hafa undanfarna daga æft með sænska félaginu Norrköping en Skessuhorn greinir frá þessu.

Með þeim í för eru Þórður Þórðarson þjálfari ÍA og Dean Martin aðstoðarþjálfari.

Þórður þekkir vel til hjá félaginu sem og bróðir hans Stefán Þór, en þeir voru báðir á mála hjá félaginu um skeið.

Andri átti lipra takta á kantinum hjá ÍA í sumar en hann var valinn efnilegastur á lokahófi félagsins um síðustu helgi.

Hallur kom inn í lið Skagamanna undir lok móts en hann var einnig í lykilhlutverki hjá öðrum flokki félagsins í sumar.
Slapp
banner