Francis Jeffers til Möltu
Sóknarmaðurinn Francis Jeffers er enn að og er nú í viðræðum við lið Floriana á Möltu.
Jeffers er 31 árs og var á sínum tíma talinn gríðarlegt efni en náði ekki að standa undir væntingum. Hann var síðast hjá Newcastle Jets í Ástralíu.
Floriana vonast einnig til að krækja í Tony Warner, 38 ára, sem er fyrrum markvörður Fulham.
Floriana er í sjöunda sæti úrvalsdeildarinnar á Möltu,
Jeffers var keyptur til Arsenal frá Everton á 10 milljónir punda 2001 en hefur síðan verið í herbúðum Charlton, Blackburn, Rangers, Ipswich, Sheffield Wednesday og Motherwell auk Newcastle Jets.
Hann spilaði einn landsleik fyrir England.

Athugasemdir
Nýjustu fréttirnar