Magnús Már Einarsson skrifar frá Albaníu
,,Það er ekki létt að koma hingað og ná í þrjú stig. Sem betur fer erum við með þennan gullfót Gylfa sem getur sett hann hvar sem hann vill," sagði Ari Freyr Skúlason við Fótbolta.net eftir 2-1 sigur Íslands á Albaníu í kvöld.
Gríðarleg rigning var í Albaníu í kvöld og það hafði mikil áhrif á leikmenn. Til að mynda voru búningar þeirra rennandi blautir.
,,Ég var örugglega svona 80 kíló, ég mun aldrei ná því í framtíðinni líklega. Við fengum nýja búninga í hálfleik og það hjálpaði smá en síðan var þetta komið í ruglið."
Ari fékk tækifæri í vinstri bakverðinum í kvöld en hann leikur framar á vellinum með félagsliði sínu GIF Sundsvall í Svíþjóð.
,,Ég er kannski ekki besti vinstri bakvörður í heiminum en ég hleyp og berst fyrir liðið. Auðvitað er gaman að spila fyrir landsliðið og maður segir ekki nei við byrjunarliðssæti."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
























