Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
Munur á Spáni og Íslandi - „Gylfi Sig á miðjunni og einhver rafvirki í vinstri bakverði“
Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
Sædís Rún: Á okkar degi getum við náð stigum af öllum liðum
Gagnrýnir nýju reglurnar harðlega - „Alveg skelfilegt ef ég á að vera hreinskilin“
Katla Tryggva fyrir Spánarleikinn: Það er alveg hægt að stríða þeim
Hödda langaði að fagna eins og Auðun gegn Haukum - „Allir á bekknum brjálaðir að hann hefði skotið"
Breki Þór: Gott í bankann
Elfar Árni: Það þýðir ekkert að fara að vorkenna sér
Badu: Við sýndum í dag að við erum með góðan hóp
banner
   mán 15. október 2012 13:51
Brynjar Ingi Erluson
Grétar Rafn: Við erum sýnd veiði en ekki gefin
Voltaren
Grétar Rafn Steinsson
Grétar Rafn Steinsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Það er alltaf heiður að vera fyrirliði og leitt að Aron sé í banni, þar sem að mér fannst gula spjaldið sem hann fékk einstaklega ósanngjarnt og það hefði verið gaman fyrir hann að leiða liðið inná í þessum leik þar sem að þessi leikur er líklega stærsti leikur sem Ísland hefur spilað á síðustu árum," sagði Grétar Rafn Steinsson, leikmaður íslenska landsliðsins í dag.

,,Við höfum fengið stórar þjóðir til að spila við bara fyrir áhorfendur að fá eiginhandaráritunum og fá að sjá svona live, en núna erum við í stórum séns að geta gert góða hluti. Þetta er topplið, númer fimmtán á styrkleikalistanum og topp lykilmenn sem eru að spila í hverri viku í stærstu deildum í Evrópu."

,,Við gerum okkur fyllilega grein fyrir okkur hversu erfitt þetta verkefni verður. Við höfum trú á þessu og Lars hefur trú á þessu og nú er einfaldlega að láta slag standa og sjá hvort við getum ekki skrifað söguna og látið fólk út í Evrópu aðeins setja spurningamerki við Ísland, hvort við séum ekki að fara að gera einhverja góða hluti."

,,Ég vil nú segja það að lið eins og Sviss, ef að kíkt er á síðustu sjö leiki og úrslitin sem þeir eru að ná. Það eru ekki margir leikir síðan liðið vann Þjóðverja 5-3 og vinna Króata og fleiri lið þannig ég held að staða þeirra númer fimmtán sé hárrétt, þó svo staða okkar segir ekki alveg til um okkar styrk en ef við vinnum ekki leiki þá fáum við ekki stig á listanum og þá erum við þar sem við erum og meðan við erum þar þá erum við sýnd veiði en ekki gefin og ég veit að Svisslendingar bera mikla virðingu fyrir okkur, en þetta verður hörkuleikur á morgun."

,,Ég held að stig á móti Sviss sé bónus. Við skulum halda okkur á jörðinni þrátt fyrir að við séum komnir með þessi stig, en ég held að leikurinn á móti Kýpur svíður dálítið að hafa ekki fengið neitt úr þeim leik, en allt annað á móti Sviss, það er topplið. Sama ef við værum að fá Spán í heimsókn, öll stig eru bónus. Við skulum ekki hoppa hæð okkar af því við erum í öðru sæti og eigum möguleika, við skulum halda okkur á jörðinni og leggja okkur fram og svo sjáum við til eftir leikinn."

,,Við þekkjum allir þessa leikmenn, en það er mun auðveldara að gíra okkur fyrir leiki gegn Sviss þar sem við þekkjum alla leikmenn og gerum okkur grein fyrir hæfileikum þeirra. Það er mun auðveldara að scouta þá og við getum líka nýtt okkar eigin reynslu gegn þessum leikmönnum, en finnst og fremst held ég að Sviss séu hættulegir, þeir eru með leikmenn sem erfitt er að reikna út. Þeir eru fljótir og teknískir og erfitt að eiga við þá, en ég held að allir leikir séu mismunandi, þótt að U21 hafi spilað við þá einu sinni."

,,Ég gæti nú sagt þér meira um fótboltann í Sviss fyrir 5-6 árum en núna, en ég fylgist vel með og sérstaklega þegar þeir eru með svona mikið af leikmönnum, það eru nú ekki margir sem spila í Sviss. Ég þekki flest alla leikmenn, hef spilað með nokkrum og móti öðrum og hef fylgst með þeim og geri mér grein fyrir hversu góðir þeir eru."

,,Við þurfum að vera þéttir, þeir spila stutt á milli sín. Reyna að þræða boltann á milli okkar í stað þess að spila langa bolta eins og þau lið sem við höfum spilað hingað til, byrja leikinn af krafti og fá fólkið á bakvið okkur strax í byrjun og ég held að það sé gífurlega mikilvægt fyrstu fimm eða tíu mínúturnar að fá stuðningsmennina með okkur og láta þá vita að þetta verði ekki eins auðvelt og þeir halda og reyna að ná marki á þeim sem fyrst,"
sagði Grétar að lokum.

Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér að ofan.
Slapp
banner
banner
banner
banner