,,Þetta var baráttusigur úti í Albaníu og að sjálfsögðu kom smá sjálfstraust sérstaklega eftir leikinn gegn Kýpur þar sem við vorum frekar slappir þannig við þurfum að gleyma þessu núna og fara að undirbúa okkur fyrir leikinn gegn Sviss," sagði Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður Tottenham Hotspur og íslenska landsliðsins á æfingu í dag.
Ísland mætir Sviss í undankeppni HM sem fer fram í Brasilíu 2014, en leikið er á Laugardalsvelli á morgun.
,,Þeir spila kannski svolítið svipaðan bolta, þeir reyna að spila boltanum, en kannski miklu meiri gæði í liðinu hjá Sviss. Þeir eru með marga góða tekníska leikmenn og flestir að spila í mjög stórum liðum, þannig þetta verður góður leikur."
,,Við erum flestir sem spiluðum á móti þeim á U21 mótinu, þannig við þekkjum þá alveg og ég held að flestir þekki þá þar sem þeir eru í stórum liðum eins og ég sagði, það er mikið quality í þessum leikmönnum þannig þetta verður erfiður leikur."
,,Það er mjög gott ef við næðum einhverjum góðum úrslitum, en auðvitað er gott að tapa ekki fyrir þeim og ná stigi. Við erum auðvitað að spila á heimavelli, en við verðum kannski ekki að vinna en það væri mjög gott, við værum þó ánægðir með eitt stig."
,,Það er engin þannig séð pressa. Við setjum pressu á okkur sjálfir bara og við viljum gera góða hluti í þessari keppni og fá eins mikið af punktum og hægt er og hífa okkur upp á listanum fyrir næstu keppni en þannig séð erum við ekkert að spá í því hvort við séum efstir eða neðstir."
,,Við höfum farið létt yfir leik Svisslendinga og við gerum það betur í dag og á morgun, þannig við verðum tilbúnir þegar leikurinn byrjar," sagði Gylfi að lokum.
Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér að ofan.
























