Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
Munur á Spáni og Íslandi - „Gylfi Sig á miðjunni og einhver rafvirki í vinstri bakverði“
Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
Sædís Rún: Á okkar degi getum við náð stigum af öllum liðum
Gagnrýnir nýju reglurnar harðlega - „Alveg skelfilegt ef ég á að vera hreinskilin“
Katla Tryggva fyrir Spánarleikinn: Það er alveg hægt að stríða þeim
Hödda langaði að fagna eins og Auðun gegn Haukum - „Allir á bekknum brjálaðir að hann hefði skotið"
Breki Þór: Gott í bankann
Elfar Árni: Það þýðir ekkert að fara að vorkenna sér
Badu: Við sýndum í dag að við erum með góðan hóp
Gunnar Már: Við munum ekki geta hvílt leikmenn
Viðar Örn: Ég hlakka mikið til að spila með honum í næstu leikjum
Óli Flóvents: Þetta mál er að baki
banner
   mán 15. október 2012 21:30
Brynjar Ingi Erluson
Íþróttafréttamaður frá Sviss: Yrði ánægður með eitt stig
Voltaren
Matthias hefur ekki séð mikið af Gylfa
Matthias hefur ekki séð mikið af Gylfa
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Staðan í riðlinum er mjög góð fyrir leikinn, svo þetta verður stór leikur fyrir bæði lið," sagði Matthias Hueppi, íþróttafréttamaður hjá DRS í Sviss við Fótbolta.net í dag.

Matthias hefur mikla reynslu sem íþróttafréttamaður í Sviss, en hann hefur bæði lýst leikjum í útvarpi og sjónvarpi síðustu áratugi og er einn fremsti fréttamaður Svisslendinga en hann ræddi leikinn gegn Íslendingum í dag.

,,Við vitum ekki nákvæmlega hversu sterkir Íslendingar eru sem lið, en Sviss hefur spilað gegn Íslandi áður, þannig sterkir, með baráttuanda, lið sem hefur bæði komið á óvart og ekki."

,,Ég hef bara séð hluta af leiknum gegn Albaníu og svo gegn Noregi, sem hefur komið mér mjög á óvart."


Sviss gerði jafntefli gegn Norðmönnum á dögunum, þar sem Brede Hangeland jafnaði þegar nokkrar mínútur voru eftir.

,,Ég er ánægður með jafnteflið þegar flautað var til leiksloka. Fyrir leikinn vildum við vinna þennan leik líka. Það hefði verið besta byrjun í sögu Sviss að fá níu stig af níu mögulegum, en sjö stig er fínt líka."

,,Ég held að þetta sé besta liðið frá því við spiluðum á HM í Bandaríkjunum árið 1994, þá vorum við með virkilega sterkt lið og ég held að þessi tvö lið séu þau bestu í sögu Sviss."


Matthias hefur ekki séð mikið af leikmönnum íslenska landsliðsins, þá hefur hann sé lítið af Gylfa Þór Sigurðssyni, leikmanni Tottenham Hotspur.

,,Ég hef lesið um hann og veit suma hluti um hann, en ég hef ekki séð mikið af honum. Ég hef heyrt að hann sé mjög hæfileikaríkur, svo Svisslendingar verða að vera mjög varkárir."

,,Það er erfitt að segja, en akkurat núna þá væri eitt stig mjög gott fyrir okkur. Það væru mjög góð úrslit fyrir Sviss,"
sagði hann að lokum.
Slapp
banner
banner