Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 17. október 2012 06:00
Magnús Már Einarsson
Heimild: Heimasíða Keflavíkur 
Samúel Kári æfir með Reading
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Samúel Kári Friðjónsson, leikmaður Keflavík, er á leiðinni til enska úrvalsdeildarliðsins Reading á reynslu.

Þessi 16 ára gamli leikmaður verður hjá liðinu í viku þar sem hann mun æfa og leika með unglingaliði félagsins.

Samúel var hjá Reading í ágúst og félagið hefur nú boðið honum aftur til sín.

Samúel var nokkrum sinnum í leikmannahópi Keflavíkur í Pepsi-deildinni í sumar.

Hann á að baki 11 leiki með U-17 ára landsliði Íslands og hefur meðal annars verið fyrirliði liðsins.
Slapp
banner