Umboðsmaður Federico Macheda, framherja Manchester United, segir að leikmaðurinn muni yfirgefa félagið í janúar ef hann verður áfram á bekknum.
Þessi 21 árs gamli framherji hefur fá tækifæri fengið í liði United síðustu misseri og hefur einnig átt tvær misheppnaðar lánsdvalir hjá Sampdoria og QPR.
Hjá United er samkeppnin hörð og er Macheda langt frá því að eiga sæti í liðinu og berst meðal annars við Robin van Persie, Wayne Rooney, Javier Hernandez og Danny Welbeck um framherjastöðurnar.
,,Hvernig getur hann verið mikilvægur fyrir lið ef hann spilar aldrei?" sagði Giovanni Bia, umboðsmaður ítalans.
,,United hefur nokkra ótrúlega leikmenn í sókninni, svo það er auðvitað mjög erfitt fyrir Federico að finna pláss. Hann vill spila og ef hann hefur ekki gert það í janúar munum við reyna að finna aðra valkosti."
Bia segir einnig að nokkur félög frá meginlandi Evrópu hafi spurst fyrir um skjólstæðing sinn í sumar.
,,Spænsk og þýsk félög spurðu um stöðuna á Macheda í sumar, en United ákvað frekar að halda honum. Ég vona að þeir skilji stöðuna og leyfi honum að fara í janúar því það nær engum áttum að halda 21 árs gömlum leikmanni á bekknum."



