Skoska félagsliðið Hearts á þessa dagana í miklum fjárhagserfiðleikum og hefur meðal annars ekki greitt hluta af launum leikmanna fyrir október.
Samkvæmt breskum fjölmiðlum hafa sex launahæstu leikmenn liðsins ekki fengið greitt, en útborgunardagur átti að vera í dag, þriðjudag.
Einnig hefur þjálfari liðsins, John McGlynn ekki fengið laun sín.
Laun septembermánaðar skiluðu sér einnig fjórum dögum of seint og eru vandamál frá síðasta tímabili að koma aftur á yfirborðið.
Þá liðu um tímabil þrír mánuðir þar sem launagreiðslur töfðust og fóru leikmenn með málið til samtaka atvinnuleikmanna í Skotlandi en fallið var frá refsingu í janúar eftir að launin voru greidd.
Eggert Gunnþór Jónsson landsliðsmaður var í herbúðum Hearts um sjö ára skeð áður en hann var seldur til Wolves í janúar síðastliðnum.
Fjárhagserfiðleikar Hearts eru ekkert einsdæmi í skoska boltanum, en eins og frægt fór stórveldið Rangers á hausin fyrr á árinu og leikur nú í þriðju efstu deild.


