Grétar Rafn: Ánægðir með fjölmiðla
Grétar Rafn Steinsson bar fyrirliðaband íslenska liðsins í kvöld þegar það beð lægri hlut gegn Sviss þrátt fyrir að liðið hafi átt góðan leik.
Grétar var að vonum svekktur; "Við náum ekki að refsa þeim þegar við fáum tækifæri til en eins og sagt var fyrir leikinn að þetta er topplið á heimsmælikvarða með frábæra einstaklinga en allir stóðu sig mjög vel og hafi notið þess að spila fótboltaleikinn."
Það voru rúmlega 8 þúsund áhorfendur á leiknum í kvöld og þakkaði Grétar áhorfendum stuðninginn: "Áhorfendur sem fylltu í völlinn í fyrsta skipti til að horfa á okkur í staðinn fyrir að horfa á súperstjörnur og ég held að strákarnir hafi haft gaman af."
Langt er í næsta leik en íslenska liðið er með 6 stig eftir 4 leiki og í ágætis stöðu í sínum riðli. "Ef við ætlum okkur á stórmót þá er það ekki leikurinn við Sviss sem mun skipta máli heldur leikirnir við Albaníu, Slóveníu og Kýpur á heimavelli."
Grétar fékk gult spjald þegar langt var liðið á leikinn í kvöld og er þar af leiðandi í leikbanni í næsta leik liðsins, á móti Slóveníu ytra í mars: "Ég bara kenni mér sjálfur um, ég fékk boltann og tók ranga ákvörðun."
Mikið gekk á þegar íslenska liðið heimsótti það albanska í liðinni viku og þakkaði Grétar fjölmiðlum fyrir sína umfjöllun um það sem þar gekk á: "Leikmenn eru virkilega ánægðir með það að fjölmiðlar hafi staðið við bakið á okkur þar sem þetta hefði getað farið miklu verr og hægt verið að taka liðið af lífi en svona í þessum rússíbana þá þjappaði þetta liðinu saman en því miður náðum við ekki að fylgja því eftir."
Athugasemdir
Nýjustu fréttirnar
18:00
11:12



