Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
Sædís Rún: Á okkar degi getum við náð stigum af öllum liðum
Gagnrýnir nýju reglurnar harðlega - „Alveg skelfilegt ef ég á að vera hreinskilin“
Katla Tryggva fyrir Spánarleikinn: Það er alveg hægt að stríða þeim
Hödda langaði að fagna eins og Auðun gegn Haukum - „Allir á bekknum brjálaðir að hann hefði skotið"
Breki Þór: Gott í bankann
Elfar Árni: Það þýðir ekkert að fara að vorkenna sér
Badu: Við sýndum í dag að við erum með góðan hóp
Gunnar Már: Við munum ekki geta hvílt leikmenn
Viðar Örn: Ég hlakka mikið til að spila með honum í næstu leikjum
Óli Flóvents: Þetta mál er að baki
Venni: Þurfum að höndla það betur en síðast
Heimir Guðjóns: Þurfum að finna lausnir
banner
   þri 16. október 2012 21:23
Hafliði Breiðfjörð
Fréttamannafundur Lars Lagerback í heild sinni
Voltaren
Lagaerback á hliðarlínunni í kvöld.
Lagaerback á hliðarlínunni í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Lars Lagerback landsliðsþjálfari Íslands ræddi við fréttamenn eftir 0 - 2 tapið gegn Sviss í undankeppni HM 2012 í kvöld. Fréttamannafundinn má sjá í heild sinni hér að ofan en hér að neðan verður bætt við meira af skrifuðu efni af fundinum.

,,Ef við erum að tala um skalann 1-10 þá er það 10," sagði Lars Lagerback landsliðsþjálfari Íslands við fréttamenn eftir 0 - 2 tap gegn Sviss í kvöld aðspurður hversu vonsvikinn hann var með tapið.

,,Það er hægt að sætta sig við tap ef hitt liðið er miklu betra. Við vorum svolitið passívir í fyrri hálfleik en í síðari hálfleiknum fórum við meira fram en við vörðumst og úr því fengum við líka betri sóknir. Miðað við marktækifærin sem við fengum í seinni hálfleik fannst mér við verðskulda jafntefli."

,,Ég get bara hrósað leikmönnunum en við töpuðum og það eru mörkin sem telja. Við fengum á okkur mörk en skoruðum ekki úr marktækifærunum okkar. Við fengu þrjú opin færi í seinni hálfleik og nokkrar góðar hraðsóknir og aukaspyrnu Gylfa í fyrri svo við hefðum getað skorað í fyrri."

,,Hannes þurfti ekki að verja í fyrri hálfleik þó svo þeir hafi verið betri en við. Ég er mjög vonsvikinn en við sögðum í búningsklefanum að við erum með sex stig svo við eigum enn möguleika. Noregur er með sjö því þeir unnu í kvöld. Sviss er aðeins að stinga af en það er enn nóg eftir. Það eru leikmenn sem koma inn í næstu leikjum eins og Kolbeinn svo ég býst við að við verðum betri á næsta ári."

Rúrik Gíslason, Grétar Rafn Steinsson og Kári Árnason fengu allir sitt annað gula spjald í unankeppninni og verða því í leikbanni í næsta leik gegn Slóveníu.

,,Það er það eina neikvæða sem við höfum lent í. Í Albaníu voru þetta óþörf gul spjöld. Það má alltaf ræða einhver af þessum spjöldum en svona er þetta bara. Spjöldin í dag voru ekki óþörf, af því sem ég sá var ekkert þeirra alveg rangt, kannski eitt en það er bara svona."
Slapp
banner
banner