,,Þetta er algjörlega grátlegt og ekki verðskuldað. Við áttum skilið að fá eitthvað út úr þessum leik," sagði Hannes Þór Halldórsson landsliðsmarkvörður eftir 2-0 tapið gegn Sviss í kvöld.
Fyrra mark Svisslendinga kom eftir að Hannes náði ekki að grípa fyrirgjöf og eftir mikinn atgang náðu gestirnir að skora.
,,Ég á að grípa þessa fyrirgjöf og þá hefði aldrei orðið neitt vesen. Ég þarf að hugsa um sjálfan mig og á að gera betur í þessu tilfelli."
Ísland er eftir leikinn með sex stig að loknum fjórum umferðum.
,,Þetta er ágætis uppskera en miðað við það hversu nálægt við vorum að ná ennþá betur þá getur maður ekki verið annað en svekktur. Það hefði verið draumur að tylla sér á toppinn og við vorum nálægt því. Sex stig er hins vegar fyrirfram ásættanlegt og nú er bara að sækja fleiri."
Hér að ofan má sjá viðtalið við Hannes í heild sinni.





















