,,Mér fannst við ekki alveg gefa þessu sénsinn í fyrri hálfleik en í seinni hálfleik áttum við skilið að skora eitt eða tvö," sagði Ragnar Sigurðsson varnarmaður Íslendinga eftir 2-0 tapið gegn Sviss í kvöld.
,,Þetta var týpískt stóra liðið á móti litla liðinu þar sem þeir refsa okkur þegar við klárum ekki okkar.
,,Þetta var týpískt stóra liðið á móti litla liðinu þar sem þeir refsa okkur þegar við klárum ekki okkar.
Íslenska liðið stjórnaði leiknum framan af í síðari hálfleik áður en Tranquillo Barnetta skoraði fyrir Sviss
,,Í fyrsta markinu erum við búnir að bjarga fimm sinnum inn í teig og síðan setur hann boltann upp í sammann. Það var svekkjandi."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.






















